frontpage hit counter
 
  Aðalsíða  
 

 
Kort
Kort af silungasvæði
Veiðistaðir
Hafa samband
Mynda albúm
Flugur
Veiðibók


Veiðihúsið Flóðvangur
Vatnsdalsá
Sími 452 4107
Skrifstofa Reykjavík
Sími 551 2112
Fax 551 4376

_____________


vatnsdalsa@vatnsdalsa.is
© Vatnsdalsá


Veiða og sleppa
 

Að sleppa laxi

Í Vatnsdalsá hefur skapast löng hefð fyrir að sleppa laxi.  Það á við hér eins og í flestu öðru að reynslan er lykill kunnátttunnar þegar miðlað er hvernig best skuli staðið að sleppingum.  Hér gilda ákveðin lögmál sem stuðla að því að laxinn komist óskaddaður aftur í umhverfi sitt til að geta haldið áfram því sem náttúran ætlast til af honum, sem er að tryggja náttúrulega hrygningu og þar með viðhald og afkomu seiðabúskaps árinnar sem hann tilheyrir.

Nokkrar helstu leiðbeiningar

• Forðist að laxinn skaddist á oddhvössu grjóti eða öðru sem sært getur hold hans við löndun

- Ef aðstæður leyfa þá leggið fiskinn í mjúkt grasið meðan flugan er losuð úr
- Þurfi að losa fluguna úr í vatninu þá varist að þrýsta fiskinum í botninn þar sem grýttur botn getur skaðað hann
- Ef notast er við háf skal hann að vera hnútalaus 

• Takið laxinn ekki upp á sporðinum einum (á sérstaklega við um stórlax)
 


- Takið um sporðinn og haldið undir fiskinn aftan við hausinn þegar honum er lyft upp
- Snertið aldrei tálkn eða augu fisksins 


• Losið fluguna úr laxinum fljótt og örugglega



- Töng er nauðsynleg þegar losa á fluguna úr fiskinum
- Mælið fiskinn eins fljótt og kostur er
- Komið fiskinum strax í vatn


• Veljið hentugan sleppistað


 
- Hentugur staður er td. í straumjaðri
  (ekki þar sem straumur er mestur/mikill)
- Snúið fiskinum á móti rennsli vatnsins 
- Gefið fiskinum góðan tíma til að ná jafnvægi og styrk áður en honum er sleppt


Annað sem hafa ber í huga

Misjafnt er hversu dasaður fiskur er eftir viðureign. Þegar fiskur er mjög þreyttur verðum við þess fljótt vart í sleppingarferlinu. Ef við teljum svo vera þurfum við að gefa okkur góðan/lengri tíma með fiskinum til að tryggja að hann nái nauðsynlegri orku og styrk áður en við sleppum honum.

Fiskur getur verið óstýrilátur til að byrja með og kynnu þá einhverjir að halda að hann sé fullur orku ennþá, en svo þarf alls ekki að vera og því ber að fara að öllu með gát og halda honum föstum með sporðtaki. Þegar um stórlax er að ræða er þetta ekki óalgengt. 



Aðalatriðið er að fiskurinn róist og til þess að það megi verða er  mönnum bent á að láta ekkert trufla fiskinn, að enginn standi fyrir framan hann eða til hliðar við hann þannig að hann verði var við, meðan verið er að meðhöndla hann. Það hefur róandi áhrif á hann.  

Sleppið ekki takinu of fljótt

Þegar fiskurinn hefur náð að vinna upp orku og styrk þá prufið að losa takið hægt og rólega af fiskinum (haldið eingöngu lauslega um sporðinn) til að sjá hvort hann hefur náð jafnvægi og færið ykkur frá honum í leiðinni, án þess þó að sleppa sporðtakinu.  Þetta má endurtaka þar til fiskurinn hefur náð fullkomnu jafnvægi. 

Til þess svo að fullvissa sig um að tilsettu marki sé náð þá er rétt að sleppa takinu af sporðinum, bakka hægt og rólega frá fiskinum og leyfa honum að hvílast á þessum sama stað.

                     

Laxinn nær að endurhlaða orkuna fyllilega á 15 mínútum. Hinsvegar ef honum líður vel á þeim stað þar sem honum hefur verið sleppt, á hann það til að liggja þar mun lengur og er ekkert óeðlilegt við það. Þegar hann síðan ákveður að fara, þá yfirleitt dólar hann rólega út í hylinn með fullri reisn og lætur sem ekkert hafi skeð, eða er kannski bara búinn að gleyma.





Pick a fly - online fly shop.  Find all the flies needed to fish in vatnsdalsa river
Önnur veiðisvæði 


Hér er hægt að skoða veiðisvæði sem G og P hafa á leigu. 



Skæðustu flugur  2012
Gárutúpa / Hitch
51 Lax(ar)
Sunray Shadow
40 Lax(ar)
Red Frances
30 Lax(ar)
Green Brahan
15 Lax(ar)


Sögur og aðsent efni

Vatnsdalur - hægri hringleið
24.6.2010

Vor hugleiðingar Þorsteins J.
meira...
 
Besta ráðið við brjósklosi!
15.8.2007

Grein um silungasvæðið í Vatnsdalsá.
meira...
 
Eldra efni

 

Forritun og hönnun Veidivefur