frontpage hit counter
 
  Aðalsíða  
 

 
Kort
Kort af silungasvæði
Veiðistaðir
Hafa samband
Mynda albúm
Flugur
Veiðibók


Veiðihúsið Flóðvangur
Vatnsdalsá
Sími 452 4107
Skrifstofa Reykjavík
Sími 551 2112
Fax 551 4376

_____________


vatnsdalsa@vatnsdalsa.is
© Vatnsdalsá


Um Vatnsdalsá
 

Vatnsdalsá er ein þekktasta laxveiðiá landsins.  Hún er fræg fyrir stórlaxa sína og ósjaldan veiðast í henni stærstu laxar á Íslandi hvert sumar.  Mjög gott aðgengi er að veiðistöðum árinnar og lítill tími fer í akstur á milli veiðistaða.

Árið 1936 hófu menn að stunda stangveiði í Vatnsdalsá og var þá veiðiréttur til stangveiði fyrst leigður út.  Fram að þeim tíma hafði eingöngu verið stunduð netaveiði í ánni.  Veiðifélag Vatnsdalsár varð til samhliða þessum breytingum.

Í dag er eingöngu veitt á flugu á laxveiðisvæðum árinnar og með breyttu veiðifyrirkomulagi frá árinu 1997, "veitt og sleppt", er laxinum sleppt aftur í ána.

Vatnsdalsá er dragá sem myndast úr kvíslum á víðlendum Grímstungu- og Haukagilsheiði.  Þaðan sem Mið- og Fellakvísl sameinast heitir áin Vatnsdalsá.  Réttarhóll er eyðibýli austan Fellakvíslar, en þar bjó um tíma Björn Eysteinsson (1848-1939).  Skínandi er efsti fossinn á fjallsbrún og þar nokkru neðar eru Keráfoss og Rjúkandi.

DalsfossSkammt frá bænum Forsæludal er Dalsfoss.  Mörgum veiðimanninum þykir tilkomumikið að koma að þessum mikla fossi, en margir góðir veiðistaðir eru á þessu svæði.  Þeir veiðistaðir eru tilkomnir vegna gerð laxastiga við Stekkjarfoss, sem er töluvert neðar, árið 1983.  Guðmundur Gunnarsson, verkfræðingur, gerði teikningu að stiganum en verkstjóri hans var Jón V. Jónsson, bóndi.  Þeir sem unnu þetta mikilvæga verkefni voru Jón Gunnarsson, Björn Líndal, Gunnar Örn Guðmundsson og Geir Björnsson.  Þeir þekktust betur undir nafninu "Stigamenn", en það nafn var þeim gefið af Sigríði Sigfúsdóttur í Forsæludal.

Töluvert neðar í dalnum er Stekkjarfoss, sem er góður veiðistaður.

Vatnsdalur er um 25 km langur og liggur milli Víðidalsfjalls og Vatnsdalsfjalls.  Mikil skriðuföll hafa orðið í Vatnsdalsfjalli forðum og hafa bæir eyðst í slíkum hamförum, t.a.m. Skíðastaðir árið 1545 og Bjarnastaðir árið 1720.

VatnsdalshólarMikil náttúrufegurð ríkir í dalnum og eitt af sérkennum hans eru Vatnsdalshólar, sem eru við mynni dalsins.  Þeir eru einkennilegir ásýndum og ná yfir rúmlega fjögurra ferkílómetra svæði.   Þeir eru í hinum ýmsu stærðum, allt frá litlum þúfum upp í 40-50 metra háir.  Lengi vel var óvíst um uppruna þeirra, en í dag þykir enginn vafi leika á að um er að ræða heljarmikið skriðufall úr Vatnsdalsfjalli löngu fyrir landnám, líklegast stærsta berghlaup sem runnið hefur niður hlíðar Vatnsdalsfjalls.  Í Vatnsdalshólum var forðum aftökustaður rétt við þjóðveginn.  Samkvæmt heimildum fór síðasta aftakan þar fram á Þrístöpum árið 1830.

Vatnsdalshólar hafa verið taldir meðal þriggja náttúrufyrirbrigða hér á Íslandi sem eru  óteljandi, en hin tvö eru vötnin á Arnarvatnsheiði og eyjarnar á Breiðafirði.

Þórdísarlundur er rétt neðan FlóðvangsSunnan undir Vatnsdalshólum er Þórdísarlundur, vestan vegar, en það er skógarreitur sem Húnvetningafélagið í Reykjavík hefur ræktað og girt.  Þar er minnisvarði um fyrsta innfædda Húnvetninginn, Þórdísi dóttur Ingimundar gamla að Hofi, sem talin er hafa fæðst þarna árið 895, skammt frá þar sem nú er veiðihúsið Flóðvangur, en þar dvelja veiðimenn sem veiða á laxasvæði árinnar.





Pick a fly - online fly shop.  Find all the flies needed to fish in vatnsdalsa river
Önnur veiðisvæði 


Hér er hægt að skoða veiðisvæði sem G og P hafa á leigu. 



Skæðustu flugur  2012
Gárutúpa / Hitch
51 Lax(ar)
Sunray Shadow
40 Lax(ar)
Red Frances
30 Lax(ar)
Green Brahan
15 Lax(ar)


Sögur og aðsent efni

Vatnsdalur - hægri hringleið
24.6.2010

Vor hugleiðingar Þorsteins J.
meira...
 
Besta ráðið við brjósklosi!
15.8.2007

Grein um silungasvæðið í Vatnsdalsá.
meira...
 
Eldra efni

 

Forritun og hönnun Veidivefur