frontpage hit counter
 
  Aðalsíða  
 

 
Kort
Kort af silungasvæði
Veiðistaðir
Hafa samband
Mynda albúm
Flugur
Veiðibók


Veiðihúsið Flóðvangur
Vatnsdalsá
Sími 452 4107
Skrifstofa Reykjavík
Sími 551 2112
Fax 551 4376

_____________


vatnsdalsa@vatnsdalsa.is
© Vatnsdalsá


Flóðvangur
 


Veiðihúsið Flóðvangur var reist árið 1964, í kjölfar samninga um leigu stangveiðiréttar í Vatnsdalsá til John Ashley-Coopers.  Flóðvangur er staðsettur vestan megin við "Flóðið" og þar dvelja veiðimenn laxasvæðis í góðu yfirlæti meðan dvöl þeirra stendur.  Lögð er mikil áhersla á gott og fjölbreytt fæði. 

Á haustmánuðum 2003 hófust framkvæmdir á viðbyggingu við Flóðvang, ásamt endurbótum á upprunalega veiðihúsinu, sem gjörbreytti allri aðstöðu fyrir veiðimenn og starfsfólk.  Hart var unnið frá hausti til vors og verkið var fullkomnað í maí árið 2004.

Nýr og endurbættur Flóðvangur er afar glæsilegur og öll aðstaða eins og best verður á kosið. 2 rúm er í hverju herbergi og aðstaðan einstaklega notarleg.  Herbergin eru hönnuð með hljóðlæti í huga, þykkar hurðir og veggir tryggja að ekki er hljóbært milli herbergja.  Fataskápar eru í hverju herbergi og rými í þeim til að geyma töskur ofl.  Í hverju herbergi er að auki salernis- og sturtuaðstaða, auk baðsloppa og handklæða. Heitur nuddpottur er utan dyra, gegnt út frá sturtu- og gufubaði. Setustofa er í andyri þar sem fólk getur sest niður og skrafað saman.  Þar er einnig sjóvarp til staðar. 

Í afar notarlegum borðsal er framreiddur morgun-, hádegis- og kvöldverður.  Þá er hægt að nálgast kaffibrúsa og nesti hjá starfsfólki til að hafa með sér til veiða. Að loknu borðhaldi sest fólk gjarnan niður í þægilegri setustofunni þar sem fallegt útsýnið blasir við gestunum. 3 verandir eru utan við veiðihúsið þar sem eru stólar og borð, og fólk getur sest niður undir berum himni. Þá getur verið tilvalið að taka stuttan hring á litlum golfvelli umhverfis Flóðvang ef svo ber undir.

Það eina sem veiðimenn þurfa í raun að hafa með sér í töskunum, fyrir utan veiðigræjurnar, er tannburstinn góði.  Öll rúm eru uppábúin og herbergi ræst reglulega milli þess sem veiðimenn eru úti við á.    

 

   

   

   

   

   
Setja inn mynd Setja inn mynd
Setja inn mynd Setja inn mynd
Setja inn mynd Setja inn mynd
Setja inn mynd Setja inn mynd




Pick a fly - online fly shop.  Find all the flies needed to fish in vatnsdalsa river
Önnur veiðisvæði 


Hér er hægt að skoða veiðisvæði sem G og P hafa á leigu. 



Skæðustu flugur  2012
Gárutúpa / Hitch
51 Lax(ar)
Sunray Shadow
40 Lax(ar)
Red Frances
30 Lax(ar)
Green Brahan
15 Lax(ar)


Sögur og aðsent efni

Vatnsdalur - hægri hringleið
24.6.2010

Vor hugleiðingar Þorsteins J.
meira...
 
Besta ráðið við brjósklosi!
15.8.2007

Grein um silungasvæðið í Vatnsdalsá.
meira...
 
Eldra efni

 

Forritun og hönnun Veidivefur