|
| John Ashley-Cooper | John Ashley-Cooper var af enskum aðalsættum, ættaður frá Dorset á Suður-Englandi. Hann átti fyrst heima í litlu þorpi, Cranborne í Dorset, en flutti síðan á fallegt sveitasetur þar í grend sem heitir "Nine Jews House". Hann var mikill áhugamaður um laxveiði og hóf laxveiðar ungur að aldri, veiddi m.a. í Noregi og Skotlandi fyrir stríð.
Cooper var við herþjónustu í breska hernum og var m.a. í "The Life Guards", sem voru riddarliðssveitir sem héldu vörð um konungsfjölskyldu Bretaveldis. Hann var tekinn höndum af Þjóðverjum þegar þeir náðu völdum eyjarinnar Krít af Bretum í upphafi styrjaldar. Hann var í Þýskum fangabúðum allt til loka styrjaldarinnar. Vera hans þar varði í um 4 ár við misjafnt atlæti í fangabúðunum. Haft er eftir Ashley-Cooper í fangelsinu að hann mun hafa sagt: "Ef ég kemst héðan lifandi mun ég veiða eins mikinn lax og ég mögulega get, það sem ég á ólifað".
Ashley-Cooper var ekki bara einn besti laxveiðimaður sem um getur á þessum tíma. Hann skrifaði auk þess 4 bækur um laxveiðar. Sú fyrsta, "A Salmon Fisher´s Odyssey", fjallaði um laxveiðar og frægar laxveiðiár á Englandi, Skotlandi, Íslandi og Noregi. Þar segir hann m.a. frá reynslu sinni af laxveiðum á Íslandi frá árunum 1960-1977. Í annari bók sinni fjallar hann um frægar laxveiðiár í Skotlandi, en hún ber nafnið "The Great Salmon Rivers of Scotland". Í þriðju bók sinni, "A Line on Salmon", fjallar hann um hegðun laxins og óræða háttsemi hans, auk þess sem hann gefur góð ráð við mismunandi aðstæður í laxveiði, og byggir þar á áratuga reynslu sinni á laxveiðum. Fjórða bók Coopers lýsir nokkrum laxveiðiám á Mið-Englandi og ber nafnið "A Ring of Wessex". Allar þessar bækur eru vel skrifaðar og áhugavert lesefni fyrir áhugamenn um laxveiðar.
Ashley-Cooper kom fyrst til veiða í Vatnsdal árið 1962. Hann veiddi einnig mikið í Laxá á Ásum. Það var svo árið 1964, þann 6. febrúar, að Veiðifélag Vatnsdalsár samdi við Ashley-Cooper um leigu á veiðirétti í Vatnsdalsá til næstu 10 ára. Í samkomulaginu fólst m.a. að veiða mátti á flugu og spón. Ashley-Cooper leyfði hins vegar eingöngu fluguveiði.
Cooper tók þátt í og kostaði að hluta uppbyggingu árinnar í orðsins fyllstu merkingu. Þar má nefna byggingu Flóðvangs, fiskvegsgerðar gegnum Flóðið auk þess að leggja fram árlega fjárhæð til að auka laxgegnd í ánni og þverám hennar. Hann dvaldi oftast um 4-5 vikur við veiðar hér á landi hvert sumar.
John Ashley-Cooper lést árið 1987. |