Það getur auðvitað tekið illilega á líka, en á endanum þá er starfið mjög gefandi og að sjá brosandi andlit eftir að veiðimaður hefur haft betur vegna leiðsagnar leiðsögumanns er nákvæmlega það sem starfið snýst um.
Það er stór hópur mikilla náttúruvina hjá okkur núna sem bæði ganga á fjöll snorka í ánni og fara í hestaferðir einhverjir fara jú út að veiða öðru hvoru og hefur það gengið ágætlega þegar reynt hefur verið.
Foringi hópsins er mikill vinur Forseta vors sem aftur heimsótti hópinn með sinni Frú. Þau gistu hér hjá okkur í Flóðvangi og fóru í útreiðartúr frá Sveinsstöðum og þau létu vel að dvöl sinni hér og þökkum við heimsókn þeirra.
Svo talað sé eitthvað um veiðina þá er töluverð hreyfing á laxinum og virðist smálax vera að koma inn. Þar sem flestir sem reynt hafa að veiða eru óvanir þá er það ekkert skrítið að þeir hafa misst um það bil 16 laxa en náð að landa 20 á 3 dögum og er það mjög ásættanlegt.
Megi Laxinn Lifa
|
|