Það hefur stundum borið á góma þetta blessaða úrkomuleysi í sumar. En þegar menn standa við bakka Vatnsdalsár í dag er einhvern veginn eins og orðið úrkoma eigi ekki alveg við. Það að vér höfum verð bænheyrðir má svo sem vel vera, en meiri dreifing hefði verið þegin með þökkum !
Það er með hreinum ólíkindum að menn yfir höfuð láti sér detta til hugar að setja saman stangir við þessar aðstæður ! En svo höfum við jú alltaf veiðinagla sem kalla ekki allt ömmu sína, og veiða meira að segja fiska þegar veiðigyðjan liggur undir feldi ! Þegar kemur að því að reyna að lýsa ástandinu eins og það er í dag við árbakkann þökkum við enn og aftur fyrir snilldar uppfinninguna sem myndavélin er, því myndir segja jú oft meir en mörg orð. Við látum því myndirnar hér að neðan um frásögnina sem við kæmum ekki betur frá okkur þótt orðin yrðu höfð fleiri.
Til gamans, og fyrir þá sem þekkja, má sjá steinana sem bera merki Hnausastrengs á fyrstu myndinni vinstra megin við bílinn sem þar stendur til hægri við þá. Maðurinn sem stendur ofan á steininum á myndinni fyrir neðan, merktum Hnausastreng, er nákvæmlega á þeim sama stað við veiðar !




Kærar kveðjur úr dalnum, Megi Laxinn Lifa
|
|