frontpage hit counter
 
  Aðalsíða  
 

 
Kort
Kort af silungasvæði
Veiðistaðir
Hafa samband
Mynda albúm
Flugur
Veiðibók


Veiðihúsið Flóðvangur
Vatnsdalsá
Sími 452 4107
Skrifstofa Reykjavík
Sími 551 2112
Fax 551 4376

_____________


vatnsdalsa@vatnsdalsa.is
© Vatnsdalsá


Hundrað - karlarnir

Það eru margir skemmtilegir hópar sem mæta til veiða hér í dalnum ár hvert. Einn með þeim fjörugri er búinn að koma hér í áraraðir og finnst sumum...
17.10.2012


...ef ekki öllum að jólin séu komin þegar þeir mæta hérna í sína daga ár hvert. Og þótt veiðin hafi verið erfið þetta árið skemmtu menn sér býsna vel þrátt fyrir það.

Hundrað – kallarnir ? Jú, það er hópur innan hópsins sem hefur náð 100 cm eða lengri lax hérna í Vatnsdalsá. Hópurinn er duglegur við að gefa meðlimum innan hans viðurnefni og fékk einn þeirra sem ekki komst í þennan túr eitt slíkt og er nú kallaður ----- Heybrók.

Meðlimir hópsins fundu þetta árið upp alveg nýja aðferð við veiðarnar og kallast sú aðferð „öfuga aðferðin“. Hún er þannig að menn fara á bakkan sem jafnan aldrei er veitt frá. Það virkaði vel, t.a.m. við Bjarnastein, þar sem menn náðu í tvo laxa. Annar var 100 cm og hinn var 84 cm. Það var sett í þriðja laxinn með sömu aðferð í Línufljóti en sá lak af eftir dálitla viðureign. Hópurinn náði að landa 6 löxum í þetta skiptið, fóru glaðir heim og töluðu um jólin á sama tíma að ári.

Myndirnar sem fylgja hér eru af öfuga bakkanum þar sem aðferðirnar eru mjög sérstakar en aftur á móti afar nauðsynlegar til að brjóta ekki stöng. Þá náðist einnig á haustdögum mögnuð mynd af Haferni á ólöglegum veiðum við bakka Vatnsdalsár.








Já, þær eru magnaðar veiðiaðferðirnar !

Bestu kveðjur úr dalnum,
Megi Laxinn Lifa






Pick a fly - online fly shop.  Find all the flies needed to fish in vatnsdalsa river
Önnur veiðisvæði 


Hér er hægt að skoða veiðisvæði sem G og P hafa á leigu. 



Skæðustu flugur  2012
Gárutúpa / Hitch
51 Lax(ar)
Sunray Shadow
40 Lax(ar)
Red Frances
30 Lax(ar)
Green Brahan
15 Lax(ar)


Sögur og aðsent efni

Vatnsdalur - hægri hringleið
24.6.2010

Vor hugleiðingar Þorsteins J.
meira...
 
Besta ráðið við brjósklosi!
15.8.2007

Grein um silungasvæðið í Vatnsdalsá.
meira...
 
Eldra efni

 

Forritun og hönnun Veidivefur