Gengur á ýmsu í veðri og vindum
Frábært holl er að ljúka veiðum á hádegi í dag. Þau hafa lent hér í Tenerife veðri venjulegum Norðan kalda með tilheyrandi súld og kulda eð bara svona sýnishorni að Íslenskri veðráttu.
Enn það gekk ágætlega og virtist vera að koma lax inn á mikilli ferð því í gær töldu menn ca 30 laxa í Stekkjarfossi það er þó sama sagan hann bara tekur ekki. það mikil glæra í ánni og því allir staði ákaflega viðkvæmir.
Þetta gekk þó ágætlega hópurinn landaði 13 löxum og hafa sennilega misst 6 laxa. Núna síðustu 2 daga virðist vera að færast svolítið líf í göngurnar. Enn eins og með kálið sopann og ausuna þá fögnum við ekki fyrr en við sjáum meira.
Með bros á vör og bestu kveðjur úr dalnum
Megi Laxinn Lifa